Trinadown under

þriðjudagur, febrúar 20, 2007

Fríinu lokið






Þa er ferðalögum og fríi lokið og skólinn byrjaður. En ég náði nú að skemmta mér vel og ferðast nokkuð, fór til 9 landa í Desember og Janúar. Við erum 16 í master prógramminu en nokkur eru ekki í fullu námi svo við erum yfirleitt færri. Allir eru orðnir voða nánir strax fyrstu vikuna og allir hjálpast að, sem er nú nokkuð gaman þar sem hingað til hafa allir verið að keppast og legið á glósum og leyndarmálum eins og ormar á gulli. En námið er greinilega full on þar sem fyrsti dagurinn var frá 9 til 9. Svo er ég að leita að bíl og flyt á mánudaginn inn í nýja húsið svo þá loks get ég tekið upp úr kössum og fundið sumarfötin, sem mikil þörf er á þar sem það er 33 stiga hiti. En nú nenni ég ekki að skrifa meir og verð að fara að læra.

11 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home