Trinadown under

sunnudagur, maí 14, 2006

Kominn með flugmiða

Komin með flugmiða heim til Íslands. Örnin lendir mánudaginn 26. júní á Íslandi. Við fljúgum í gegnum Hong Kong og Qatar. Ætlum að stoppa í Doha í Qatar í 2 daga á leiðinni heim og svo einn dag í Hong Kong á leiðinni til baka. Það verður víst einhver sumarhátið í Qatar um leið og við verðum þarna svo það verður svakastuð, vona bara að ég megi klæða mig glyðrulega og þurfi ekki að vera í kufli sem hylur allt, við eigum von á um 40 stiga hita og miklum raka þarna á þessum tíma.
Annars er allt í fína í Kína hér niður frá. Litli Thor átti 3 ára afmæli þann 1. mai og hélt svakapartý.
Prófin fara að skella á og erum við því sveitt alla daga núna að klára verkefni og undirbúa próf.
Ég og Sameera tókum okkur nú samt smá lærupásu um daginn og fórum í 10 tíma surf kennslu í Lancelin, sem er bær hér norðan við Perth.
Verð ég nú bara að segja að við vorum nokkuð góðar eftir að við vorum búnar að jafna okkur eftir hræðsluáróðurinn. Kennslan byrjaði nefnilega á því að fara yfir öryggisatriði klukkan sjö um morgun, sem fólst í ráðum um hvað þú átt að gera ef hákarl ræðst á þig, eða lendir í rip og hvernig þú getur forðast eitraða fiska. Ég var orðin ansi skelkuð því Sameera hafði beðið með það þar til kvöldið fyrir kennsluna að segja mér að hún væri eiginlega ósynd. En við stóðum okkur eins og hetjur og vorum orðnar ansi fagmannlegar við þetta í lok dags (að eigin sögn). (Bloggið er eitthvað bilað svo ég get ekki sett inn myndir)



Hér í Perth var svo Sexpo síðustu helgi, þar sáum við mann sem málaði málverk með typpinu sínu, peep show, karlmannstrippara, súludansa og fleira fleira perralegt.


Annars er lítið að frétta nema lærdómur, skil á lokaverkefni og verknám. Ég er á fullu í verknámi núna sem felur í sér að hjálpa heimilislausu fólki að takast á við vandamálin sín og finna húsnæði og jafnvel vinnu. Ég átti að fá mína fyrstu skjólstæðinga í síðustu viku og var ógurlega spennt, þar sem þetta var par og ég hef svo mikinn áhuga á pararáðgjöf. En kvöldið fyrir okkar fyrsta tíma, brutust þau inn í bar í hverfinu og stungu af. Counselling framinn minn byrjar vel hér í Ástralíu.


C ya mates in Iceland !!!!!!!

13 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home