Trinadown under

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Já já





















Gat loksins sett inn myndir svo nú byrjar stuðið, en eins og glöggir lesendur sjá eru þetta myndir frá Hong Kong, næst mun ég kannski sýna myndir frá Qatar og fleiru stuði.
Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar, símtölin, emailin, sms, bréfin, gjafirnar og kveðjurnar hér á blogginu. Fékk frábærar gjafir og þar á meðal alvöru kaffivél svo nú bíð ég upp á frítt kaffi á Cafe Boans Warehouse og huggulega tóna með Dan Van Dango og Jose Gonzales meðan sötrað er. Allir velkomnir.
Átti auðvitað yndislegan afmælisdag sem byrjaði á frönskum morgunverði og pakka. Var svo grillað í hádeginu, chillað, borðað ljúfengan Tasmaníu lax á Seven Seas um kvöldið og endað á Youth Group tónleikum í lok dags.
Er svo byrjuð í nýju vinnunni minni sem mér finnst vera svona fullorðinsvinna, þar sem það er dresscode og má ég ekki vera í gallabuxum. Sem mér finnst vandasamt því ég á eiginlega bara gallabuxur. En þetta er voða hugguleg vinna og fínt samstarfs fólk og allt voða fínt bara.
Annars er það bara ekki fleira að þessu sinni "cheers mates".

14 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home