Trinadown under

þriðjudagur, júní 05, 2007

Blogg blogg





Tók mér smá frí frá lærdómi um helgina, skellti mér að surfa á nýja brettinu mínu (var ekki með neina myndavél en tek myndir næst og skelli hér upp). Er búin að vera að drepast úr harsperrum eftir allt þetta padl og svo dansæði á Amplifier síðar um kvöldið. Þetta er engin smá líkamsrækt, en í fyrsta skipti sem ég prófaði nýja brettið tókst mér að standa upp alls 4 sinnum, en æfingin skapar meistarann og ætla ég mér að verða meistari mikill. Fór svo í bekkjarpartý þar sem það endaði með því að ég og Sarah sátum tvær einar eftir á trúnó og sumbli fram undir morgun, svo alvarlegt þetta sálfræðifólk að það fer alltaf snemma heim. Á mánudag var svo public holiday svo við Peter elduðum file í búttudegi og salat og gáfum krökkunum að borða í Kings Park og svo var þessu skolað niður með rauðvíni og spilaður fótbolti eftir á. Voru krakkarnir hissa þegar þau sáu gömlu góðu Aftureldingar taktana mína, en náði ég ekki öllum ljómanum þar sem Peter er fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta svo hann átti ljómann í það skiptið. Við Helga skelltum okkur svo í skandinavíu partý í Nordic House í Thornlie þar sem við skelltum fram dönskunni okkar eins og okkur væri borgað fyrir það. Hittum þar tvær íslenskar konur og sagði Lóa mér að það voru hér 100 íslendingar fyrir nokkrum árum, aðeins stærra íslendingafélag en okkar 7 manna í fyrra og tveggja manna félagið okkar Helgu núna. Komu flestir þessir íslendingar á skipi hingað 1960 og eitthvað, stoppuðu í Portúgal og nokkrum stöðum í Afríku og enduðu svo hér og fóru aldrei aftur. Var ég fyrir vonbrigðum að heyra að hreimurinn fer seint og má ég búast við því að tala með íslenskum hreim það sem eftir er af minni ástralíudvöl.

En jæja verð að halda áfram að læra er að fara í supervision, svo er lokapróf í næstu viku, dagbókarskil nokkrum dögum síðar og svo tvö assessment verkefni, nei nei það er ekkert vetrarfrí fyrir sálfræði nema hér. Fæ nú samt 2 vikna frí í lok Júlí og ætla ég þá að skella mér til Óla míns í Melbourne, liggja á mörkuðum vel maríneruð af kokteilum og surfa þegar færi gefst.

Farvel