Trinadown under

sunnudagur, júlí 01, 2007

Langt um liðið

Kveðju póker fyrir Stuart (hann er þessi með langa hárið í miðjunni)
Brjóstakaka sem við Sameeru bjuggum til handa Peter á afmælinu hans, með littlu sápu stykki.
Andrew eldaði fimm rétta máltíð handa okkur öllum
Kveðju partý heima hjá okkur fyrir Stuart
Peter hellti rauðvíni ofan í sjónvarpið, svo við urðum að opna það og þrífa, það lagaði sig svo bara sjálft þrem vikum síðar, held samt að það hafi hjálpað að við þrifum það með tannbursta.


Ég fæ víst ekki bikarinn fyrir að vera besti bloggarinn en svona er þetta nú bara. Margt búið að gerast hér niður frá. Búin í prófum en ekki búin að fá neinar niðurstöður. Búin með fyrstu önnina af masternum en er samt að mæta í skólann 5 daga vikunnar vegna námskeiða og clienta. Svo ég er sú eina af vinahópnum sem er ekki í fríi.

Er búin að fara í 17. Júní grill með íslendingum sem búa hér í Perth, við vorum alveg 6 íslendingar saman komin plús meðfylgjandi útlendingar.

Búin að kveðja Stuart hann er farin aftur til Englands, búin að fara í nokkur afmæli, tvær ástralskar vinkonur mínar orðnar óléttar og í dag á Peter afmæli svo við fórum við út að drekka og dansa í gær til að fagna og liggjum núna rottu yfir videoi þar sem við ætluðum í go kart en það er "stormur" svo strákarnir vildu nota storminn til að vindsurfa. Mér fannst þetta fyrst náttúrulega engin stormur bara rigning og rok en þegar ég horfði á fréttirnar sá ég að það var vatn búið að flæða inn í hús, tré búin að fjúka upp með rótum og þak plötur farnar á flug. Svo var ég að keyra á Kwinana Frwy um daginn og þá var honum lokað vegna þess að áin flæddi yfir götuna og öldur af ánni skvettust yfir bílinn. Þetta er víst alvöru vetur núna með stormum, held samt að veðrið sé kannski svipað heima á Íslandi um sumar.

Er svo að fara til Yallingup á Föstudag og verð þar fram á sunnudagskvöld þar sem dagskráin verður sofa, borða, og surfa. Erum búin að leigja kofa í skógi við ströndina svo við getum vaknað gripið brettin og gengið beint í öldurnar. Ég er dáldið skelkuð þar sem ég hélt að hákarla tíðininni væri lokið, en Peter fór að surfa um daginn og sá hákarls ugga standa upp úr sjónum, hann var ekki lengi að koma sér í land elsku kallinn. En lukkulegt er að Sophie fer með okkur og hún er atvinnu strandvörður svo ég hef hana sem öryggisnet.

Svo styttist í Melbourne ferðina mína þar sem við Óli verðum faboulus í kokteil mókí verslandi á mörkuðum.

Svo er ég orðin þreföld frænka, Valli og Lena búin að eignast litla stúlku, ég verð upptekin við að fá báðar nýju frænkur mínar á mitt band næstu jól þar sem hvorug þeirra þekkir mig.

Jæja nenni ekki meir í dag

Yfir og út

10 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home