Trinadown under

fimmtudagur, apríl 12, 2007

Skamm Simmó

Nú þegar veturinn er að skella á gengur flensu faraldur um Perth, meira að segja krókódílarnir eru farnir að leggjast í flensu. Þessi krókódíll fékk slæma flensu og þegar dýralæknirinn ætlaði að gefa honum flensu sprautu beit krókódíllinn hendina af greyi lækninum.
Greyi krókódíllin náði aldrei að jafna sig á flensunni því hann var drepinn til að ná hendinni og sauma hana aftur á dýralæknin. Best að róa skapið aðeins í flensunni til að halda lífi.




Átti annars dýrlega páska með húsið út af fyrir mig og því þurfti ég ekki að deila íslenska páskaegginu og draumunum með neinum. Málshátturinn hefði þó mátt vera aðeins fallegri þar sem eggið var frá mínum heittelskaða en svona hljóðaði hann " Ekki er svo fögur eik hún fölni ekki um síðir" Svo þurfti ég ekkert að elda þar sem allir vorkenndu útlendingnum að vera ein um páskana svo mér var alltaf boðið í mat.

Fór í grillveislu, eftir 4 tíma svefn haldinn slæmri þynnku í Rockinham þar sem ég hitti nokkra "íslendinga", fékk sjúklega gott kjöt svo þynnkan rauk úr manni á nóinu. Fyndið að hitta Íslendinga með ástralskan hreim og finnst mér skrítið hvernig þau geta flutt svona burt frá Íslandi og aldrei eða kannski örsjaldan farið aftur til Íslands. Engin þeirra getur hugsað sér að flytja aftur til Íslands og líta eiginlega bara á sig sem ástrali. En gaman var að geta spjallað á íslensku og segja sögur frá Íslandi, (þau vissu varla hver væri forseti Íslands).

En nú eru strákarnir komnir aftur heim, það var engin vindur lengur svo þeir komu heim fyrr svo nú verð ég að klæða mig í föt og vera dönnuð á ný. En ágætt að þeir komu til að týna upp allar pöddurnar sem liggja undir glösum út um öll gólf, var farin að vanta glös til að drekka úr.


4 Comments:

  • Ógeðsleg krókódíla mynd. Þetta var samt ekki Simmó í dýragarðinum er það???
    Hvaða photoshop er þetta hjá þér - þú virðist vera mun stærri en konurnar sem eru með þér á myndinni. Kannast ekki við það að Íslendingar skreppi saman við það að flytjast til Oz... hvað þá að þú virðist stærri en aðrir :)
    Farðu varlega og ef þú færð flensu þá kaupir þú bara lyf sem gera þig hálf dópaða.

    By Blogger Aslaug, at 4:55 PM  

  • Nei þetta var ekki Simmó en fannst bara fyndið ef þetta hefði verið hann. Já ég veit mjög skrítið að ég er svona stór en Helga er náttla bara 13 ára og mamma Ben þessi í miðjunni er rosalega lítil. Eða kannski er ég bara búin að stækka, ég er alltaf búin að vera að bíða eftir vaxtarkippinum sem mamma sagði að myndi koma ;)
    Sendi gjafirnar handa börnunum eftir helgi á eftir að bæta smá í og þá er þetta komið. Fylgstu svo með póstinum

    By Anonymous Katrín, at 4:59 PM  

  • Haha, ég rak einmitt augun í þessa sjónhverfingu líka. Þú virðist vera algjör risi hliðin á Sharene (sem nottla mjög lítil) og Helgu litlu..

    By Anonymous Helga Frikka, at 6:36 PM  

  • Við Thor erum að skoða bloggið þitt. Honum fannst góð sagan af krókódílnum og biður um fleiri ljótar sögur. Vill líka fá myndir af þér að sjá snáka :) Hann er allur í því að vilja heyra ljótar sögur sem innihalda úlfa eða önnur vond kvikindi.
    Átti líka að segja þér að þegar leikskólinn fór í skordýraleit fann bara Sófus einn orm - ekki neitt meira. En þau sáu einn róló.
    Góða helgi systir og vinkona/frænka/kærasta

    By Blogger Aslaug, at 3:02 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home